Upplýsingar um seljanda
Seljandi er GB Trading ehf., kt. 540199-3969, Hólmagrund 15, 550 Sauðárkrókur. VSK númer: 60924.
Almennt
GB Trading ehf., kt.5401993969 á og rekur netverslunina Icelandcraft.is og áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Icelandcraft.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Icelandcraft.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Gallaðar vörur
Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.
Greiðsluform
Icelandcraft.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með greiðslukorti. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu SaltPay. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
• útsöluvöru er hvorki hægt að skila né skipta
• Sérpöntuðum og sérframleiddum vörum er ekki hægt að skila
• Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.