Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er GB Trading ehf., kt. 540199-3969, Hólmagrund 15, 550 Sauðárkrókur. VSK númer: 60924.

Almennt

GB Trading ehf., kt.5401993969 á og rekur netverslunina Icelandcraft.is og áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Icelandcraft.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Icelandcraft.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Gallaðar vörur

Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.

Greiðsluform

Icelandcraft.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með greiðslukorti. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu SaltPay. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi, þegar hann staðfesti kaup á vöru verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.

Skilafrestur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.  Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

• útsöluvöru er hvorki hægt að skila né skipta
• Sérpöntuðum og sérframleiddum vörum er ekki hægt að skila
• Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd

Netverð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

 

Iceland Craft notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

When you visit any web site, it may store or retrieve information on your browser, mostly in the form of cookies. Control your personal Cookie Services here.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á icelandcraft.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Við notum Woocommerce verslunarkerfið. Í pöntunarferlinu verða tvær vafrakökur geymdar. Þær eru nauðsynlegar til að hægt sé að nota kerfið og því ekki hægt að slökkva á þeim.
  • woocommerce_cart_hash
  • woocommerce_items_in_cart

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur