Fyrirtækið okkar er lítið fjölskyldufyrirtæki sem selur íslenskar lambagærur og handunnar trévörur. Allt eru þetta einstakar vörur, en gærur af íslensku sauðfé eru svo skemmtilega skrautlegar og engin eins. Við handsmíðum svo vörurnar okkar úr vönduðum viðartegundum sem við fáum hjá skógarbændum hér heima, vörurnar eru svo meðhöndlaðar með gæða olíum.
Markmið okkar er að bjóða uppá vandaðar íslenskar vörur og veita góða þjónustu, bjóðum uppá að sérsmíða fjalir/platta og saltskálar fyrir einstaklinga og fyrirtæki.